Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 7.5.2011
| 7:07
D'Ambrosio færður aftur
Jerome d'Ambrosio hjá Virgin verður færður aftur eftir rásmarkinu eftir tímatökurnar í dag, ef það á annað borð verður hægt.
D'Ambrosio fékk akstursvíti á sig dæmt eftir seinni æfingu gærdagsins. Virti hann ekki gul flögg með því að hægja ferðina eftir að Pastor Maldonado hjá Williams snarsnerist út úr brautinni í áttundu beygju.
Refsingin felst í afturfærslu um fimm sæti eftir tímatökurnar. Nær öruggt þykir að með því hefji belgíski ökuþórinn keppni aftastur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







