Button sigrar í ringulreiðinni

Button og Vettel takast í hendur í Montreal. stækka

Button og Vettel takast í hendur í Montreal. reuters

Jenson Button hjá McLaren var í þessu að vinna kanadíska kappaksturinn í Montreal. Annar varð Sebastian Vettel á Red Bull og liðsfélagi hans Mark Webber varð þriðji. Fjórar stundir liðu frá því ökumennirnir voru ræstir af stað þar til kappakstrinum lauk.

Button sótti mjög á síðustu hringina og vann sig fram úr hverjum ökumanninum á fætur öðrum uns aðeins Vettel var eftir. Minnkaði hann bilið milli þeirra jafnt og þétt og var það innan við sekúnda er lokahringurinn hófst og Button stóð því vel að vígi með hreyfivæng.

Ekki kom til þess að hann þyrfti á þeirri hjálp að halda til að komast fram úr því Vettel urðu á mistök á miðjum síðasta hringnum svo Button sigldi auðveldlega fram úr og vann kappaksturinn. Með því komst hann upp í annað sæti í keppninni um heimsmeistaratitil ökumanna, hefur 101 stig en Vettel 161 og Webber 94.

Michael Schumacher á Mercedes var undir lokin í öðru sæti en féll niður í það fjórða á síðustu þremur hringjunum er Webber og síðar Button unnu sig fram úr. 

Eftir er að koma í ljós hvort Button þurfi að sæta refsingu vegna samstuðs þeirra Lewis Hamilton á áttunda hring kappakstursins, þótt ólíklegt sé talið að svo verði.

Kappaksturinn í Montreal á engar hliðstæður. Vegna úrhellis var öryggisbíll í brautinni sem svarar tæplega helming vegalengdarinnar og eftir 45 mínútna keppni var hún stöðvuð vegna skýfalls og of djúps vatns á brautunum. Liðu tvær klukkustundir og fjórar mínútur frá því kappaksturinn var ræstur á ný.

Og aftur fór öryggisbíllinn fyrir fyrstu 10 hringina, en kappaksturinn hófst einnig með hann í fylkingarbrjósti. Fyrir stoppið hafði hann auk þess verið sendur tvisvar út í brautina vegna óhappa og var einnig sendur síðar.

Til marks um ringulreiðina í Montreal var öryggisbíllinn sendur alls fimm sinnum út í brautina og þrátt fyrir refsingu og tvenn óhöpp á leiðinni ók Button til sigurs. Í kappakstri sem Vettel hafði þar til örfáar beygjur voru eftir virst hafa í hendi sér.

Lítið vantaði á að keppni yrði flautuð af áður en hringjunum 70 lauk þar sem ökumenn voru að falla á tíma, þ.e. hámarks keppnistími er tvær klukkustundir. Vegna sóknar Buttons undir lokin var það spurning hvort honum ynnist tími til að komast fram úr eða hvort Vettel myndi bjarga sér og vinna sigur með hjálp  tímareglunnar.
Button á silfurör McLaren í Montreal.

Button á silfurör McLaren í Montreal. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is