Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 13.7.2011
| 18:27
| Uppfært
17.7.2011
19:45
Perez prófar Ferrari
Mexíkóski ökuþórinn Sergio Perez hjá Sauber mun prófa formúlubíl Ferrari síðar á árinu, að því er ítalska liðið hefur skýrt frá.
Perez er á jómfrúarári sínu í formúlunni en hann hefur verið hluti af ökuþóraakademíu Ferrari.
Hann mun fá að spreyta sig á keppnisbíl Ferrari frá í hitteðfyrra íannað hvort eða Fiorano í september. Þar mun franski ökuþórinn Jules Bianchi, sem keppir í GP2 og er varaökumaður formúluliðsins, einnig spreyta sig. Bianchi er einnig liðsmaður akademíu Ferrari.
Stjórnandi akademíunnar, Luca Baldisseri, segir að það verði einkar fróðlegt að fá tækifæri til að bera þá saman, Bianchi og Perez. Koma báðir til greina sem framtíðarmenn hjá Ferrari.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






