Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 21.7.2011
| 14:51
| Uppfært
18:45
Chandhok í stað Trulli
Indverski ökuþórinn Karun Chandhok mun snúa aftur til keppni í formúlu-1 í þýska kappakstrinum komandi helgi. Víkur Jarno Trulli sæti fyrir honum hjá Lotusliðinu en Chandhok hefur verið þriðji ökuþór þess.
Til þess að undirbúa keppni hefur Chandhok fengið að spreyta sig á fernum æfingum á árinu, í Melbourne, Tyrklandi, Valencia og Silverstone.
Chandhok keppti í fyrra með Hispanialiðinu en eftir breska kappaksturinn var hann látinn víkja fyrir japanska ökuþórnum Sakon Yamamoto.
Trulli mun verða Chandhok innan handar í Nürburgring um helgina og veita honum ráð.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






