Vill Trulli áfram í liði sínu
Eigandi og aðalstjórnandi Lotusliðsins, Tony Fernandes, segir viðræður standa yfir um framlengingu ráðningarsamnings Jarno Trulli sem víkja þarf um helgina sæti fyrir þriðja ökuþór liðsins í þýska kappakstrinum.
Karun Chandhok keppir í Nürburgring í stað Trulli en hann þykir líklegur til að hljóta sæti ökumanns hjá Lotus á næsta ári.
Fernandes segist þakklátur fyrir hversu vel Trulli sætti sig við ákvörðunina um að gefa Chandhok tækifæri.
„Ég vil þakka Jarno fyrir að hjálpa Karun um helgina. Hann var einkar samstarfsþýður í því að víkja úr sæti fyrir hann og stuðningur okkar við Trulli er einarður.
Það er mér ánægja að skýra frá því að viðræður standa yfir við Jarno um framlengingu ráðningarsamnings hans. Hann er lykilmaður í liðinu,“ sagði Fernandez í dag.







