Glock hjá Virgin til 2014
Timo Glock framlengdi í dag ráðningarsamning sinn við Virginliðið um þrjú ár og verður ökumaður þar á bæ út árið 2014. Hann hóf störf hjá Virgin í byrjun vertíðar í fyrra eftir að Toyota dró sig út úr keppni, en þar starfaði hann áður.
„Mér er það ánægja að staðfesta að Virginliðið verður minn vinnustaður nokkur næstu árin,“ sagði Glock af þessu tilefni skömmu fyrir upphaf þýska kappakstursins í Nürburgring í dag.
Hann hóf keppnisferilinn í Nürburgring á sínum tíma, en Glock er þýskur.
Glock var svekktur með stöðu liðsins eftir nokkur fyrstu mót ársins og fannst því ekki hafa farið nógsamlega fram frá í fyrra. Hann er bjartsýnni nú þar sem Virgin hefur gert samning um tæknilega aðstoð við McLarenliðið og keypt að auki tæknifyrirtæki á sviði framleiðslu kappakstursbíla, svonefnt Wirth Racing Technologies.
Þetta tvennt segir Glock endurspegla mikinn metnað Virgin og segist hann sjá fram á mun bjartari tíma með liðinu.







