Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 28.7.2011
| 15:46
Aka líka fyrir Sauber 2012
Ökuþóraskipan hjá Sauberliðinu verður sú hin sama á næsta ári og á yfirstandandi vertíð. Samningar Kamui Kobayashi og Sergio Perez hafa verið framlengdir.
Ökuþórarnir hafa vakið athygli fyrir frammistöðu sína í ár og slík er ánægja með störf þeirra innan liðsins, að Sauber hefur ákveðið að halda í þá.
Liðsstjórinn Peter Sauber skýrði frá þessu í dag í aðdraganda ungverska kappakstursins sem fram fer um helgina. Ásamt þessu verður Esteban Gutierrez áfram varaökuþór Sauber.
Ferrari er eina liðið auk Sauber sem skýrt hefur frá ökuþóraskipan sinni á næsta ári, en þeir verða þeir sömu og í ár, Fernando Alonso og Felipe Massa. Sterklega er búist við því að hið sama verði ofan á hjá Red Bull, McLaren og Mercedes.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







