D’Ambrosio spenntur á heimavelli
Belgíski kappaksturin í Spa um helgina verður sá fyrsti á heimavelli í formúlu-1 fyrir ökumanninn Jérôme d’Ambrosio, hinum tvítuga nýliða hjá Virgin.
D’Ambrosio er fyrsti belgíski ökumaðurinn til að keppa í Spa frá árinu 1994 er keppni landa hans Philippe Adams hjá Lotus lauk með brottfalli eftir snarsnúning í brautinni.
Besti árangur d’Ambrosio í ár er 14. sæti í kanadíska kappakstrinum í Montreal.
„Ég hef lengi hlakkað til þessarar stundar og nú er helgin runnin upp. Ég er mjög spenntur og get ekki beðið þess að keppa frammi fyrir löngum mínum. Það er langt síðan Belgíumaður keppti í formúlu-1, nákvæmlega 18 ár frá síðasta kappakstri Thierry Boutsen. Þetta verður því sérstök helgi fyrir mig og stuðningsmenn mína og ég mun reyna njóta hennar til fullnustu.
D’Ambrosio fyrir miðju í efri röð á blaðamannafundi í Spa í dag. Aðrir á myndinni (f.v.) eru Buemi, Schumacher, Vettel ... reuters
Það jafnast ekkert við að keppa á heimavelli og Spa er ein af uppáhalds brautunum mínum,“ segir d’Ambrosio í tilefni helgarinnar.






