Miklar uppfærslur í bíl Virgin
Virginliðið mun mæta til leiks í ítalska kappakstrinum í Monza með umfangsmiklar uppfærslur í keppnisbíl sínum.
Til stóð að taka búnaðinn í notkun í breska kappakstrinum en því var frestað vegna mikillar uppstokkunar í tæknideild liðsins og mannabreytinga. Það er að baki og nýr tæknistjóri, Pat Symonds, hefur yfirfarið hinar ráðgerðu uppfærslur og samþykkt.
Symonds er á því að uppfærslurnar muni skila talsverðum framförum hvað bílhraða varðar. Um er að ræða nýja hlíf á vélarhúsinu, nýja hliðarbelgi, nýja útfærslu á pústkerfinu og breytta botnplötu á aftari helmingi bílsins.
Þá verður sérlegur vængur fyrir aðstæður í Monza. Að honum frátöldum verður hinn nýi búnaður á bílnum það sem eftir er vertíðar. Með breytingunum mun afturendinn verða mun aðskornari en hingað til.







