Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 5.9.2011
| 16:42
| Uppfært
6.9.2011
6:43
Karthikeyan snýr aftur
Indverski ökuþórinn Narain Karthikeyan snýr aftur til keppni með Hispanialiðinu í indverska kappakstrinum 30. október.
Karthikeyan mun njóta fjárhagslegs stuðnings til að snúa aftur í sætið frá indversku viðskiptaveldi, Hero Motors.
Hann var settur til hliðar hjá Hispania vegna skorts á árangri fyrr í sumar og ökuþór á mála hjá Red Bull, Daniel Ricciardo, fenginn til að keppa í hans stað.
Þrátt fyrir að hafa verið settur til hliðar með þessum hætti hefur Karthikeyan starfað áfram hjá Hispania og m.a. fengið tækifæri á föstudagsæfingum keppnishelga.
Indverski kappaksturinn fer fram í fyrsta sinn í ár og nærvera Karthikeyans sem keppanda er talin munu auka áhuga heimamanna fyrir mótinu til muna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin








