Liuzzi refsað fyrir klessuna

Kraðak í fyrstu beygju í Monza vegna hópáreksturs. stækka

Kraðak í fyrstu beygju í Monza vegna hópáreksturs. reuters

Tonio Liuzzi hjá Hispania hefur verið refsað fyrir að vera valdur að hópárekstri í fyrstu beygju eftir ræsinguna í ítalska kappakstrinum í Monza sl. sunnudag.

Hirtingin er fólgin í því að færa hann aftur um fimm sæti á rásmarkinu að tímatökunum loknum í næsta móti, í Singapúr.

Liuzzi missti stjórn á bíl sínum er hann bremsaði fyrir beygjuna með þeim afleiðingum að bíllinn fór út fyrir brautina, út á gras og rann óviðráðanleg inn í beygjuna á mikilli ferð og á aðra bíla.

Liuzzi varð að hætta keppni á staðnum og einnig þeir Nico Rosberg hjá Mercedes og Vitaly Petrov hjá Renault. Þá skemmdust bílar Sebastien Buemi hjá Toro Rosso og  Rubens Barrichello hjá Williams.

Kraðak í fyrstu beygju í Monza vegna hópáreksturs.

Kraðak í fyrstu beygju í Monza vegna hópáreksturs. reuters

Ólíklegt er að afturfærslan muni nema svo mörgum sætum eins og refsingin hljóðar upp á því Hispaniabíllinn hefur ekki haft burði umfram það að vera í allra síðustu sætum. Þannig hóf Liuzzi keppni aftastur í Monza.

Liuzzi gengur frá braki Hispaniabílsins.

Liuzzi gengur frá braki Hispaniabílsins. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl


finnur.is