Titilkeppnin ráðist 11 sinnum í Japan
Sebastian Vettel getur orðið heimsmeistari í Japan á sunnudag, eins og komið hefur fram á formúluvef mbl.is Ellefu sinnum hefur titilkeppnin ráðist í Japan. Síðast var þar að verki Michael Schumacher er hann landaði titlinum í landi sólarinnar 2003.
Vettel vantar aðeins eitt stig af 175 mögulegum til að innsigla sigur í titilkeppninni. Ætti honum vart að verða skotaskuld úr því þar sem hann hefur hlotið stig í 16 síðustu mótum í röð. Metið í þeim efnum á Schumacher sem á sínum tíma vann stig 24 mót í röð.
Schumacher er eini ökuþórinn sem unnið hefur í Suzuka þrjú ár í röð, en það gerði hann 2000, 2001 og 2002. Af 26 mótum sem haldin hafa verið í Japan frá 1976 hefur McLaren hrósað sigri átta sinnum og Ferrari sjö sinnum.
Enginn japanskur ökuþór hefur unnið sigur í formúlu-1 á heimavelli. Japan á aðeins einn fulltrúa í hópi ökumanna nú, Kamui Kobayashi hjá Sauber.
Þrjú lið hófu keppni í byrjun vertíðar í fyrra, en ekkert þeirra hefur enn sem komið er unnið stig í keppni, en gefin eru stig fyrir fyrstu 10 bíla í mark í hverju móti. Hér er um að ræða liðin Lotus, Hispania og Virgin.








