Kobayashi færður fram
Kamui Kobayashi hjá Sauber hefur verið færður úr tíunda sæti á rásmarki japanska kappakstursins í það sjöund.
Ástæðan er sú að hann hóf tímahring undir lok þriðju lotu tímatökunnar og réði það því að hann var færður upp fyrir Michael Schumacher hjá Mercedes og Renaultþórana Bruno Senna og Vitaly Petrov. Enginn þeirra hóf tímahring áður en tími til þess rann út í lokin.
Schumacher gerði tilraun til þess en náði ekki í tæka tíð yfir marklínuna vegna atviks í lok hringsins þar sem við sögu komu hann, Mark Webber hjá Red Bull og Lewis Hamilton hjá McLaren.
Hamilton hægði ferðina í lokabeygjunum til að hafa næsta bíl á undan sem lengst frá sér en við það drógu Webber og Schumacher hann uppi og töfðust fyrir aftan. Báðir tóku þeir fram úr Hamilton í lokabeygjunni og tókst Webber að komast yfir marklínuna og hefja sinn lokahring áður en flaggið féll.
Það tókst hins vegar hvorugum þeirra Hamiltons og Schumacher, vantaði báðum sekúndubrot upp á að ná línunni. Deildu þeir um atvikið eftir á, Hamilton sagði Schumacher hafa gerst sekan um hættulegt uppátæki en Schumacher svaraði því til að McLarenþórinn hefði ekið heimskulega með þá Webber rétt fyrir aftan sig.









