Hamilton hress en segir ekkert unnið enn
Lewis Hamilton sagði það sérlegt gleðiefni að vera á ráspól kóreska kappakstursins, en bætti við, að það væri árangur morgundagsins eins sem teldi. Vann hann í dag sinn fyrsta ráspól frá í Montreal fyrir rúmu ári.
Hamilton batt enda á sigurgöngu Red Bull í tímatökum og virðist McLaren standa vel að vígi í Yeongam því Hamilton og liðsfélagi hans Jenson Button voru hraðskreiðastir á öllum æfingum helgarinnar.
Með árangrinum stöðvaði Hamilton einnig framrás Sebastians Vettel, sem unnið hafði ráspólinn síðustu sex mótin í röð.
„Ég er ánægður, mjög ánægður. Og stoltur með þann árangur sem mannskapurinn hefur náð í síðustu mótum, með sigur Jensons í síðasta móti og svo erum við aftur á tveimur fremstu rásröðum hér, og við erum þeir einu sem höfum betur gegn Red Bull. Ég er mjög glaður en það er morgundagurinn sem gildir,“ sagði Hamilton eftir tímatökurnar.
Hann viðurkenndi að ráspóllinn væri ljósglæta eftir erfiða daga í nokkrum síðustu mótum.








