Hamilton rýfur einokun Red Bull

Fyrstu þrír í tímatökunum í Yeongam. McLaren rauf einokun Red Bull á ráspólnum með árangri ... stækka

Fyrstu þrír í tímatökunum í Yeongam. McLaren rauf einokun Red Bull á ráspólnum með árangri Hamiltons. reuters

Lewis Hamilton hjá McLaren var í þessu að vinna ráspól kóreska kappakstursins. Með því rauf hann einokun Red Bull sem unnið hafði alla ráspóla ársins til þessa, 16 að tölu.

Þetta er 19. ráspóllinn sem Hamilton vinnur, hans fyrsti frá í kanadíska kappakstrinum í fyrra og sá fyrsti á þessu ári. Red Bull hafði unnið keppni um ráspól frá og með kappakstrinum í Abu Dhabi í fyrra.

Hamilton hafði öll tögl allan tímann og ók hraðast í öllum þremur lotum. Um skeið leit út fyrir að félagi hans Jenson Button ætlaði að velta honum úr sessi því hann var hraðskreiðastur eftir fyrri tímahring lokalotunnar. En við því sá heimsmeistarinn frá 2008 og Button varð að gera sér þriðja sætið að góðu því á seinni hringnum komst Sebastian Vettel hjá Red Bull fram úr honum. Slagurinn stóð sem fyrr milli þessara toppliða tveggja því Mark Webber varð fjórði á Red Bull. 

Vettel játar sig sigraðan í Yeongam.

Vettel játar sig sigraðan í Yeongam. reuters

Annan kappaksturinn í röð sló Felipe Massa hjá Ferrari liðsfélaga sínum Fernando Alonso út en þeir hefja keppni á morgun á fimmta og sjötta rásstað.

Nico Rosberg á Mercedes og Vitaly Petrov hjá Renault deila fjórðu rásröðinni á morgun og ökumenn Force India þeirri fimmtu en þeir völdu að aka ekki í lokalotunni.

Michael Schumacher á Mercedes var sleginn út í annarri lotu og hefur keppni milli Toro Rosso bílanna í tólfta sæti. Glímdi hann við mikinn titring í bílnum sem rakinn hefur verið til dekkjanna sem undir bílnum voru.

Niðurstaða tímatökunnar, og þar með rásröð kappakstursins, varð sem hér segir:

Hamilton í tímatökunum í Yeongam.

Hamilton í tímatökunum í Yeongam. reuters

Röð Ökuþór Bíll Tími Bil
1. Lewis Hamilton McLaren 1:35.820
2. Sebastian Vettel Red Bull 1:36.042 +0.222
3. Jenson Button McLaren 1:36.126 +0.306
4. Mark Webber Red Bull 1:36.468 +0.648
5. Felipe Massa Ferrari 1:36.831 +1.011
6. Fernando Alonso Ferrari 1:36.980 +1.160
7. Nico Rosberg Mercedes 1:37.754 +1.934
8. Vitaly Petrov Renault 1:38.124 +2.304
9. Paul di Resta Force India enginn tími
10. Adrian Sutil Force India enginn tími
11. Jaime Alguersuari Toro Rosso 1:38.315 +1.789
12. Michael Schumacher Mercedes 1:38.354 +1.828
13. Sebastien Buemi Toro Rosso 1:38.508 +1.982
14. Kamui Kobayashi Sauber 1:38.775 +2.249
15. Bruno Senna Renault 1:38.791 +2.265
16. Pastor Maldonado Williams 1:39.189 +2.663
17. Sergio Perez Sauber 1:39.443 +2.917
18. Rubens Barrichello Williams 1:39.538 +2.013
19. Heikki Kovalainen Lotus 1:40.522 +2.997
20. Jarno Trulli Lotus 1:41.101 +3.576
21. Timo Glock Virgin 1:42.091 +4.566
22. Jerome D'Ambrosio Virgin 1:43.483 +5.958
23. Tonio Liuzzi Hispania 1:43.758 +6.233
24. Daniel Ricciardo Hispania enginn tími
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl


finnur.is