Sjötta sætið enn takmark Sauber

Perez á Sauber á undan Michael Schumacher á Mercedes. stækka

Perez á Sauber á undan Michael Schumacher á Mercedes. reuters

Sauberliðið hefur ekkert misst vonina um að ná sjötta sætinu í keppninni um heimsmeistaratitil liða. Í belgíska kappakstrinum féll það fyrir Force India niður í sjöunda sætið.

Markmið Sauber hefur allt árið verið að hreppa sjötta sætið en þrjú mót eru eftir vertíðar og inn í þau fer Force India með 9 stiga forskot á svissneska liðið, 49:40. Og verða Saubermenn að hafa sig alla við þar sem liðinu stendur ógn af Toro Rosso sem er í áttunda sæti með 37 stig.

„Í heildina séð er ég býsna ánægð með útkomuna í ár, ekki síst þegar litið er til allra hindrananna sem við höfum þurft að yfirstíga frá 2009,“ segir framkvæmdastjóri Sauber, Monisha Kaltenborn, en það ár eignaðist Peter Sauber liðið aftur eftir að þýski bílsmiðurinn BMW hrökklaðist af vettvangi formúlu-1.

Kobayashi hefur á stundum verið mjög öflugur á Saubernum.

Kobayashi hefur á stundum verið mjög öflugur á Saubernum.

„Takmarkið í ár var að bæta okkur klárlega frá í fyrra. Við vorum öflug á fyrri helmingi vertíðarinnar. Eitt og annað hefur hins vegar orðið okkur mótdrægt síðan og kostað okkur stig og meitla frá okkur forskotið sem við höfðum byggt upp. En við viljum endurheimta sjötta sætið í keppni bílsmiða og það er vinnanlegt,“ segir Kaltenbohn.



  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl


finnur.is