Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 20.10.2011
| 7:14
Vettel fer heim með formúlubíl
Sebastian Vettel snýr aftur til Heppenheim, heimabæjar síns í Þýskalandi, eftir langa útivist. Í farteskinu verður sigurbíll hans í keppninni um heimsmeistaratitil ökumanna. Mun hann taka á honum súning á götum bæjarins á laugardag.
Að þessu sinni hittir Vettel heimamenn sína sem heimsmeistari ökumanna. Mun hann aka keppnisbíl sínum, sem hann hefur uppnefnt sem „Kinky Kylie“, um götur Heppenheim.
„Það liggur ótrúlegur árangur að baki titlinum í ár og ég hlakka til að snúa aftur heim og fagna honum með öllum í Heppenheim,” segir Vettel. Eftir aksturinn mun hann fara á meðal unnenda sinna á svonefndu Europaplatz við miðbæinn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






