Hülkenberg keppir fyrir Force India
Niko Hülkenberg mun keppa fyrir Force India á næsta ári. Skammt er í að ráðningin verði staðfest opinberlega, segir franski formúluvefurinn tomorrownewsf1.
Vefurinn segir Hülkenberg hafa skrifað undir ráðningarsamning sem keppnisökumaður Force India á næsta ári og með möguleika á framlengingu út árið 2013. Hann hefur verið á mála hjá liðinu í ár sem þriðji ökumaður þess. Hefur hann gjarna ekið öðrum bílnum á fyrri föstudagsæfingu keppnishelga.
Óljóst er hvor núverandi ökumanna Force India þarf að víkja fyrir Hülkenberg. Segir franski formúluvefurinn frá því, að undanfarnar vikur hafi stefnt í vinslit milli Adrians Sutil og liðseigandans Vijay Mallya. Ástæðan er sú að Sutil skoðaði sig um í bækistöðvum Williamsliðsins síðsumars. Umboðsmaður hans, Manfred Zimmerman, sagðist nýverið eiga í samningaviðræðum við Force India vegna skjólstæðings síns en hann geti ekki beðið svara fram í desember, eins og Mallya hafi boðað. Það gæti orðið of seint ef samningar tækjust ekki.







