Vettel tók 13. ráspólinn í ár
Sebastian Vettel hjá Red Bull var í þessu að krækja í 13. ráspól sinn á vertíðinni af 17 mögulegum í tímatökum indverska kappakstursins. Lewis Hamilton á McLaren varð annar en hefur keppni í fimmta sæti vegna refsingar. Þriðji varð Mark Webber á Red Bull.
Ráspóllinn er sá 28. á ferli Vettels og með honum hefur bíll Red Bull keppni af fremstu rásröð 22. mótið í röð. Segir það mikið um ágæti bílhönnuðarins annálaða, Adrians Newey. Og báðir bílar liðsins verða á fremstu rásröð á morgun vegna refsingar Hamiltons, hennar vegna færist Webber upp í annað sætið.
Heimsmeistarinn var eiginlega í sérflokki í annarri og þriðju lotu tímatökunnar og seinni tilraun Hamiltons til að velta honum úr sessi mistókst. Annars voru tímatökurnar mun jafnari en æfingarnar og var Fernando Alonso á Ferrari t.d. aðeins 11 þúsundustu úr sekúndu á eftir Webber og hefur keppni af þriðja rásstað.
Félagi hans Felipe Massa varð fyrir því óláni í seinni tímatilraun sinni í lokalotunni að fjöðrun hægra framhjóls brotnaði er hann missti bílinn of langt út fyrir bríkurnar í beygju. Hafnaði hann á öryggisvegg. Þrátt fyrir það hélt hann sjötta sæti.
Þrír ökumenn óku ekki neitt í lokalotunni til að spara dekkjaforða sinn fyrir keppnina á morgun. Adrian Sutil á Force India fékk áttunda sætið á rásmarkinu og Toro Rosso mennirnir þau tvö næstu, Jaime Alguersuari og Sebastien Buemi.
Vitaly Petrov á Renault ber líklega harm sinn í hljóði yfir að komast ekki í lokalotuna en hann varð 11. á nákvæmlega sama tíma upp á þúsundasta úr sekúndu og Alguersuari sem varð fyrri til og hlaut því tíunda og síðasta sætið inn í lokalotuna. Petrov færist aftur um fimm sæti á morgun, í það 16. vegna refsingar sem hann hlaut fyrir að keyra á Michael Schumacher hjá Mercedes í kóreska kappakstrinum fyrir hálfum mánuði.
Schumacher reið ekki feitum hesti frá tímatökunum í Buddh-brautinni við Nýju Delhí, varð aðeins 12. í annarri lotunni og komst því ekki í keppnina um 10 fremstu sætin á rásmarkinu. Til marks um hve keppnin var jöfn var Schumacher aðeins 18 þúsundustu úr sekúndu frá því að komast í lokalotuna.
Niðurstaða tímatökkunar - og þar með rásröð morgundagsins - varð sem hér segir:
| Röð | Ökuþór | Bíll | Tími | Bil |
|---|---|---|---|---|
| 1. | Sebastian Vettel | Red Bull | 1:24.178 | |
| 2. | Lewis Hamilton | McLaren | 1:24.474 | +0.296 |
| 3. | Mark Webber | Red Bull | 1:24.508 | +0.330 |
| 4. | Fernando Alonso | Ferrari | 1:24.519 | +0.341 |
| 5. | Jenson Button | McLaren | 1:24.950 | +0.772 |
| 6. | Felipe Massa | Ferrari | 1:25.122 | +0.944 |
| 7. | Nico Rosberg | Mercedes | 1:25.451 | +1.273 |
| 8. | Adrian Sutil | Force India | enginn tími | |
| 9. | Sebastien Buemi | Toro Rosso | enginn tími | |
| 10. | Jaime Alguersuari | Toro Rosso | enginn tími | |
| 11. | Vitaly Petrov | Renault | 1:26.319 | +1.662 |
| 12. | Michael Schumacher | Mercedes | 1:26.337 | +1.680 |
| 13. | Paul di Resta | Force India | 1:26.503 | +1.846 |
| 14. | Pastor Maldonado | Williams | 1:26.537 | +1.880 |
| 15. | Bruno Senna | Renault | 1:26.651 | +1.994 |
| 16. | Rubens Barrichello | Williams | 1:27.247 | +2.590 |
| 17. | Sergio Perez | Sauber | 1:27.562 | +2.905 |
| 18. | Kamui Kobayashi | Sauber | 1:27.876 | +1.687 |
| 19. | Heikki Kovalainen | Lotus | 1:28.565 | +2.376 |
| 20. | Jarno Trulli | Lotus | 1:28.752 | +2.563 |
| 21. | Narain Karthikeyan | Hispania | 1:30.216 | +4.027 |
| 22. | Daniel Ricciardo | Hispania | 1:30.238 | +4.049 |
| 23. | Jerome D'Ambrosio | Virgin | 1:30.866 | +4.677 |
| 24. | Timo Glock | Virgin | 1:34.046 | +7.857 |








