Vettel sló met Mansells

Mansell á ferð á Williamsbílnum í Mónakó 1992.

Mansell á ferð á Williamsbílnum í Mónakó 1992.

Sebastian Vettel hjá Red Bull náði nýjum áföngum og setti met með sigrinum í indverska kappakstrinum. Hann hóf keppni af ráspól, var fremstur hvern einasta hring og setti hraðasta hring dagsins.

Sló Vettel met breska ökuþórsins Nigel Mansell sem verið hafði fleiri hringi í forystu í keppni en nokkur annar. Samtals leiddi Mansell 692 hringi á Williamsbíl á vertíðinni 1992 en Vettel bætti um betur í Nýju-Delhí. Hefur hann nú verið alls verið fremstur í 711 hringi og ekki er útlit fyrir neitt annað en hann bæti fleirum við í mótunum tveimur sem eftir eru, í Abu Dhabi og Sao Paulo.

Indverski kappaksturinn er sá fyrsti þar sem Vettel nær þeim áfanga að vinna ráspól, leiða allan kappaksturinn á leið til sigurs og setja hraðasta hring. Hafði 21 ökumaður afrekað áður að vinna slíka stórslemmu, þar af tveir núverandi keppenda, Michael Schumacher og Fernando Alonso.

Jenson Button og Nigel Mansell brosmildir fyrir sýningarakstur í miðborg London.

Jenson Button og Nigel Mansell brosmildir fyrir sýningarakstur í miðborg London. mbl.is/Jordan

Þá vann Vettel 16. ráspól Red Bull á árinu sem er met á einni og sömu vertíðinni. Þá var þetta í níunda sinn á árinu sem hann setur hraðasta hring kappaksturs. Frægir ökumenn með jafnmarga hringi eru breski ökuþórinn Denny Hulme, Svíin Ronnie Peterson og Jacques Villeneuve.

Loks hefur Vettel lokið 19 síðustu mótum í röð í stigasæti en aðeins einn ökuþór hefur gert betur, landi hans Michael Schumacher. Hann var í stigum 24 mót í röð frá í ungverska kappakstrinum 2001 til Malasíukappakstursins 2003.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl


finnur.is