Vettel jafnaði met Mansells
Sebastian Vettel á Red Bull var í þessu að vinna geysiharðan slag um ráspól kappakstursins í Abu Dhabi. Á síðustu hálfu mínútunni sátu bæði Jenson Button og Lewis Hamilton á pólnum en Vettel átti lokaorðið.
Hann vann með þessu sinn 14. ráspól á vertíðinni, en með því jafnaði hann ráspólamet breska ökuþórsins Nigel Mansell frá árinu 1992. Sjaldan hefur Vettel þurft jafn mikið að hafa fyrir pólnum svo jöfn og hörð var keppnin.
Hamilton átti hraðasta hring tímatökunnar, en í annarri lotu og það taldi ekki í lokin. Hafði hann verið einna hraðskreiðastur það sem af er helginni og fljótastur á tveimur æfingum af þremur. Og þótt þeir McLarenfélagarnir hefðu nánast drottnað tímatökurnar nánast þar til yfir lauk urðu þeir að sætta sig við annað og þriðja sætið á ráspól.
Mark Webber hjá Red Bull klúðraði lokatilraun sinni og varð fjórði. Þriðju rásröðinni deildu svo Ferrarifélagarnir Fernando Alonso og Felipe Massa. Var sá fyrrnefndi 0,6 sekúndum lengur með hringinn en Vettel og svipaður munur var á Ferrariþórunum.
Nico Rosberg og Michael Schumacher hjá Mercedes urðu í sjöunda og áttunda sæti og ökumenn Force India, Adrian Sutil og Paul di Resta, hefja keppni í níunda og tíunda sæti. Var di Resta eini ökuþórinn sem reyndi ekki við tíma í lokalotunni.








