Vettel: næturvinnan skilaði sér
Sebastian Vettel segir að uppsetningarvinna næturlangt hafi verið lykillinn að því að hann vann sinn 29. ráspól á ferlinum í tímatökunum í Abu Dhabi í dag. Náði hann einkar góðum hring í lokatilraun síðustu lotu og skaust fram úr McLarenþórunum.
Vettel sagðist ekki hafa verið ánægður með bíl sinn í gær og því hafi tæknimenn lagst yfir uppsetningarnar og prófað sig áfram með þær fram á nótt. Það þakkar hann árangurinn í dag en hann jafnaði met breska ökuþórsins Nigels Mansells sem vann á sínum tíma 14 ráspóla í röð á einni og sömu vertíðinni.
„Í hreinskilni sagt var ég ekki ánægður með bílinn í gær. Við tölum meiri getu búa í honum en náðum henni ekki út. Í tímatökunum var bíllinn miklu betri og hafði ég góða tilfinningu fyrir honum, sérstaklega á mjúkdekkjunum,“ sagði Vettel.







