De la Rosa enn og aftur til keppni
Pedro de la Rosa við skyldustörf hjá McLaren í Silverstone 2005. mbl.is/Ágúst Ásgeirsson
Spænski ökuþórinn Pedro de la Rosa sem sopið hefur marga fjöruna í formúlu-1 snýr aftur til keppni á næsta ári og þá með spænska liðinu Hispania. Hann hefur ráðið sig til tveggja ára en hann er nú á 41. aldursári.
Liðið hyggur gott til glóðarinnar í uppbyggingu sinni því Pedro de la Rosa býr yfir meiri reynslu en margur við þróun keppnisbíla. Starfaði hann til að mynda um átta ára skeið sem þróunarökumaður McLaren auk þess að keppa fyrir liðið á stundum.
De la Rosa hefur 88 mót undir belti en keppnisferill hans hófst árið 1999 með Arrowsliðinu. Um tíma keppti hann og fyrir Jagúar en var síðan reynsluökumaður McLaren 2003 til 2009 og aftur í ár. Meðal annars keppti hann þar í hálfa keppnistíð í stað 2006 er Juan Pablo Montoya var látinn fara frá liðinu.
Hann sneri aftur til keppni í fyrra með Sauber en var látinn sigla sinn sjó áður en vertíðinni lauk. Sinnti hann síðan reynsluakstri fyrir Pirelli í fyrrahaust og vetur áður en hann sneri aftur til starfa hjá McLaren. Þaðan var hann lánaður til Sauber með dags fyrirvara fyrir kappaksturinn í Montreal í sumar. Keppti hann í stað Sergio Perez sem var frá vegna meiðsla.






