Button og Senna læstir úti
Jenson Button virðist þurfa stríða við mótlæti þegar hann er á ferð í Sao Paulo í Brasilíu. Í fyrra freistuðu vopnaðir stigamenn þess að ræna en hann komst undan. Í gær voru honum allar dyr lokaðar þegar hann reyndi að mæta til leiks í Interlagosbrautinni.
Þegar Button knúði dyra í Interlagos ásamt m.a. Bruno Senna hjá Renault og Karun Chandhok, varaökumanni Lotus, var þeim synjað um aðgang. Verðir neituðu að hleypa þeim inn þótt í lögreglufylgd væru. Voru aðkomuleiðir þeirra lokaðar.
„Þeir vildu ekki hleypa okkur inn um aðalhliðið. Og lokuðu undirgöngunum og neituðu okkur um aðgang. Við héngum fyrir utan og reyndum að komast inn. Síðan ókum við í kring og reyndum að komast annars staðar. Við þráttuðum og sögðum vörðunum að þeir yrðu þá að greiða sektina sem við fengjum fyrir að mæta ekki á formlega blaðamannafundinn. Á endanum létu þeir undan,“ sagði Button.
Button á annars líka gleðilegar minningar frá Interlagos því þar vann hann sín fyrstu stig í formúlu-1, á Williamsbíl árið 2000. Og þar innsiglaði hann heimsmeistaratitil ökuþóra með Brawnliðinu árið 2009. Á verðlaunapallinum í Interlagos hefur hann þó einungis einu sinni staðið og ekki verið meðal 10 fremstu í tímatökum þar síðustu sex árin.
„Vonandi tekst mér betur upp en það í ár. Titilinn er frátekinn svo við getum skemmt okkur heilmikið á sunnudag,“ sagði Button sem er í öðru sæti í titilkeppninni.






