Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 25.11.2011
| 17:32
Hamilton efstur á seinni æfingunni
Lewis Hamilton á McLaren setti besta brautartímann á seinni æfingunni, sem var að ljúka í Sao Paulo. Í næstu sætum urðu Red Bull félagarnir Sebastian Vettel og Mark Webber.
Aðeins munaði 11 þúsundustu úr sekúndum á Webber og Fernando Alonso á Ferrari sem setti fjórða besta tímann. Í næstu sætum urðu Michael Schumacher á Mercedes, Felipe Massa á Ferrari og Jenson Button á McLaren.
Tími Hamiltons var næstum hálfri sekúndu betri en besti tíminn á fyrri æfingu dagsins en þar var á ferð Webber. Undir þeim tíma voru fyrstu sjö menn á seinni æfingunni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







