Rigning býður upp á óvænta hluti

Alonso varð að ganga heim í skúr eftir að vélin gaf sig á fyrri æfingunni. stækka

Alonso varð að ganga heim í skúr eftir að vélin gaf sig á fyrri æfingunni. reuters

Fernando Alonso hjá Ferrari vonar að hann rigni í Interlagosbrautinni þar sem það muni hleypa miklu fjöri í Brasilíukappaksturinn og auka meðal annars möguleika hans sjálfs á sigri. 

Michael Schumacher hjá Mercedes segir að „óvæntir“ hlutir gætu gerst gangi veðurspár eftir en í þeim er gert ráð fyrir regni þegar kappaksturinn fer fram á sunnudag.

Munur á ökumönnum var lítill á æfingunum í dag og því talið að væta myndi hleypa miklu fjöri í keppnina. Schumacher hefur 10 sinnum staðið á verðlaunapalli í Sao Paulo og þar af  farið fjórum sinnum með sigur af hólmi í Interlagosbrautinni.

Schumacher var aðeins 0,3 sekúndum frá besta brautartíma Lewis Hamilton hjá McLaren í dag og m.a. fljótari í förum en Felipe Massa á Ferrari og Jenson Button á McLaren. Bindur hann vonir við vætu í tímatökunum þar sem það gæti aukið möguleika Mercedes á góðum árangri.

Alonso var aðeins 0,2 sekúndum á eftir Hamilton en segir of snemmt að segja um samkeppnisfærni Ferrarifáksins eftir æfingarnar í dag. Hann átti við ýmis tæknivandamál að stríða í dag og m.a. gaf vélin sig á fyrri æfingunni. Hann segir þó, að eini möguleiki sinn á sigri sé að hann rigni, annað hvort í tímatökunum eða kappakstrinum.

Michael Schumacher í Sao Paulo.

Michael Schumacher í Sao Paulo. reuters

Vélin gaf sig í bíl Fernando Alonso á fyrri æfingunni í Sao Paulo.

Vélin gaf sig í bíl Fernando Alonso á fyrri æfingunni í Sao Paulo. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl


finnur.is