Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 25.11.2011
| 7:13
| Uppfært
7:42
Toro Rosso fær nýjan aðalhönnuð frá McLaren
Toro Rosso hefur ráðið hönnuðinn Luca Furbatto frá McLaren. Verður hann nýr aðalhönnuður liðsins frá Faenza á Ítalíu.
Furbatto er 39 ára og hefur verið liðsmaður McLaren undanfarin 11 ár, nú síðast sem aðstoðar verkfræðistjóri nýjasta keppnisbílsins, MP4-26.
Furbatto hefur störf í bílsmiðju Toro Rosso á Ítalíu í desember. Liðið hefur stóraukið tæknisveit sína í framhaldi af kvöðum sem á öll lið voru lögð í fyrra um að þau yrðu að hanna bíla sína sjálf í þess að kaupa undirvagn þeirra og grind frá móðurfélaginu Red Bull.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






