Webber fljótastur í Interlagos

Webber sposkur á svip í Sao Paulo. stækka

Webber sposkur á svip í Sao Paulo. reuters

Mark Webber á Red Bull ók hraðast á fyrri æfingu dagsins í Sao Paulo í Brasilíu, en þar fer síðasta mót ársins fram á sunnudag. Í næstu sætum urðu McLarenfélagarnir Jenson Button og Lewis Hamilton.

Aðeins munaði 14 þúsundustu úr sekúndu á bestu tímum Webbers og Button í Interlagosbrautinni. Hamilton var síðan rétt rúmum tíunda úr sekúndu á eftir. 

Í næstu þremur sætum urðu heimsmeistarinn Sebastian Vettel á Red Bull og Ferrarifélagarnir Felipe Massa og Fernando Alonso.

Heimamennirnir Rubens Barrichello hjá Williams og Bruno Senna hjá Renault settu 13. og 14. besta tíma æfingarinnar.

Varamenn nokkurra liða sinntu akstri fyrir lið sín í stað annars keppnisþórsins. Fremstur þeirra varð Nico Hülkenberg hjá Force India sem setti áttunda besta tímann og var aðeins 16 þúsundustu á eftir Michael Schumacher hjá Mercedes.

Webber á leið til besta tímans á fyrri æfingu dagsins í Sao Paulo.

Webber á leið til besta tímans á fyrri æfingu dagsins í Sao Paulo. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl


finnur.is