Brawn lætur rimmu ökumannanna óskipta
Ross Brawn segir ástæðulaust að blanda sér í rimmu Michaels Schumacher og Nico Rosberg á kappakstursbrautinni - og það jafnvel þótt minnstu hafi munað að þeir rækjust saman í síðasta móti, í Abu Dhabi.
Schumacher varði stöðu sína grimmt gagnvart Rosberg inn að áttundu beygju á fyrsta hring Yas Marina-brautarinnar og þótti heppni að þeir skullu ekki saman.
En þrátt fyrir að þeir glími reglulega og af aukinni hörku um á brautinni segist Brawn ánægður með hvernig þeir ganga til verka. Er breska aksturstímaritið Autosport spurði hvort hann óttaðist að vaxandi keppnisspenna milli ökumanna, sagði hann: „Ég held hún sé ekki að sýna sig núna, hún hefur alla tíð verið fyrir hendi.“
Brawn segist segja við ökumennina að allir starfi saman sem lið og þeir verði að halda skynsamlega á málum. „Teldi ég annan þeirra sýna hinum yfirgang þá myndum við taka það fyrir og ræða málin. En ekkert þurfti að segja eftir Abu Dhabi því hvorugur ökumannanna var úrillur út í hinn. Það var býsna djarft teflt en þeim er frjálst að keppa og ég vona að þannig geti það haldið áfram.“







