Hnífjafnt á lokaæfingunni
Heimsmeistarinn Sebastian Vettel hjá Red Bull lét að sér kveða á lokaæfingunni fyrir tímatökurnar í Sao Paulo, velti Jenson Button hjá McLaren undir lok hennar úr efsta sæti lista yfir hröðustu hringi.
Button var eins og í samloku Red Bull manna því Mark Webber setti þriðja besta tímann. Til marks um hversu hnífjafnir fremstu menn voru þá munaði aðeins 87 þúsundustu úr sekúndu á hring Vettels og Button og 50 þúsundustu á McLarenþórnum og Webber.
Og síðan voru aðeins 25 þúsundustu úr sekúndu á milli Webber og Lewis Hamilton á McLaren sem varð fjórði. Fernando Alonso á Ferrari átti fimmta besta tímann en þann sjötta besta setti Adrian Sutil á bíl Force India.
Tuginn fylltu svo Nico Rosberg og Michael Schumacher á Mercedes, Paul di Resta á Force India og heimamaðurinn Felipe Massa á Ferrari.







