Vettel slær 19 ára gamalt ráspólamet
Sebastian Vettel nýtti síðasta tækifærið sem hann hafði til að slá 19 ára gamalt ráspólamet breska ökuþórsins Nigels Mansell, sem vann 14 póla árið 1992. Það met jafnaði Vettel í indverska kappakstrinum fyrir mánuði en í dag bætti hann um betur og vann 15. ráspólinn á árinu í tímatökunum í Sao Paulo rétt í þessu.
Mansell hafði ekki eins mörg tækifæri til að vinna póla og Vettel; mótin voru mun færri 1992 en í dag. Met setti yngsti heimsmeistari sögunnar engu að síður í dag og útlit er fyrir að það standi lengi.
Vettel setti í leiðinni besta brautartíma helgarinnar til þessa. Hann er því í góðri stöðu til að reyna aka til sigurs og vinna sinn 12. kappakstur á árinu.
Báðir bílar Red Bull, meistaraliðs bílsmiða annað árið í röð, hefja keppni á fremstu rásröð Interlagosbrautarinnar á morgun þar sem Mark Webber varð annar í tímatökunum í dag. Víst má búast við því að Webber verði honum skeinuhættur því hann freistar þess að vinna sig upp í annað sætið í keppninni um heimsmeistaratitil ökuþóra, en til þess dugar honum ekkert minna en sigur þar sem hann er 22 stigum á eftir Jenson Button hjá McLaren.
Button hefur keppni næst Webber þar sem hann varð þriðji í tímatökunum, næst á undan liðsfélaga sínum Lewis Hamilton sem hefur keppni í fjórða sæti. Fernando Alonso á Ferrari varð fimmti, Nico Rosberg á Mercedes sjötti, heimamaðurinn Felipe Massa á Ferrari sjöundi, Adrian Sutil á Force India áttundi, annar heimamaður, Bruno Senna á Renault varð níundi og úr 10. sæti á morgun leggur Michael Schumacher á Mercedes af stað.






