Marussia ræður Pic hinn franska
Franski ökuþórinn Charles Pic mun keppa fyrir Marussia liðið í formúlu-1 á næsta ári, að því er Virginliðið staðfesti í dag. Orðrómur um ráðninguna fór á flug eftir að hann æfði með liðinu í Abu Dhabi eftir kappaksturinn þar.
Pic hefur undanfarin tvö ár keppt í GP2-formúlunni með ágætum. Hann leysir Jerome D'Ambrosio af hólmi í liðinu sem mun ekki lengur heita Virgin, heldur Marussia á næsta ári.
Timo Glock mun áfram keppa fyrir liðið.
„Ég er mjög ánægður með að taka skrefið upp í formúlu-1. Sem ökumanni finnst manni alltaf sem maður sé reiðubúinn að taka næsta skref upp á við en reynsluaksturinn í Abu Dhabi var erfið prófraun.
Þar fékk ég gott tækifæri til að sanna mig og var ánægður með frammistöðu mína. Og liðið virðist hafa verið það líka,“ segir Pic.






