Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 8.12.2011
| 17:52
McLaren fyrsta kolefnisfría liðið
McLaren hefur með ráðstöfunum í bílsmiðju sinni í Woking í Englandi náð þeim áfanga að verða fyrsta keppnislið formúlu-1 til að teljast að fullu kolefnisjafnað.
Liðið hefur verið sérstaklega viðurkennt af breskri stofnun sem fjallar um aðgerðir til að draga úr kolefnisnotkun, en hún hafði einnig viðurkennt aðgerðir McLaren í þá veru í desember fyrir ári.
Með aðgerðum og aukinni skilvirkni í bílsmiðjunni er McLaren sagt hafa minnkað kolefnisnotkun sína um sem nemur 1500 tonna útblæstri af gróðurhúsaloftinu koltvíildi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






