Räikkönen slasast á snjósleða
Kimi Räikkönen meiddi sig í snjósleðakappakstr í Saalbach-Hinterglemm, skammt frá Salzburg í Austurríki. Lotus Renault liðið segir þó, að meiðslin séu ekki alvarleg.
„Kimi er í fínu lagi, engar áhyggjur af honum, hann sneri sig aðeins á úlnliðnum,“ segir á tvittersíðu Renault, sem mun bera nafnið Lotus 2012.
Stutt er frá því skýrt var frá endurkomu Räikkönen í formúlu-1 en hjá Renault kemur hann í stað Roberts Kubica sem meiddist alvarlega á hendi í rallkeppni í byrjun árs. Var Renault harðlega gagnrýnt fyrir að leifa pólska ökumanninum að keppa í annarri akstursíþrótt svo skömmu fyrir keppnistíðina, en vegna meiðslanna missti Kubica af henni allri.
Vegna þessa vekur undrun, að fallist skyldi á að Räikkönen keppti í snjósleðakappakstrinum. Auk hans voru meðal keppenda Nick Heidfeld , Nico Hülkenberg, Sakon Yamamoto, Christian Klien og Patrick Friesacher, sem allir hafa komið við sögu formúlu-1, og DTM-ökuþórinn Timo Scheider og heimsmeistarinn í mótorkrossi, Heinz Kinigadner.






