Sutil í viðræðum við Williams

Adrian Sutil leitar fyrir sér annars staðar en hjá Force India. stækka

Adrian Sutil leitar fyrir sér annars staðar en hjá Force India. mbl.is/forceindiaf1

Adrian Sutil hefur staðfest, að hann freisti þess að fá vinnu annars staðar en hjá Force India liðinu þar sem allar líkur séu á því að liðið muni ekki ráða hann fyrir næsta ár.

Allt þykir stefna í að Force India haldi í Skotann Paul Di Resta - sem þykir hafa staðið sig afburða vel í ár - og veiti Nico Hülkenberg stöðuhækkun og geri hann að keppnisþór, en hann var varaökumaður liðsins í ár.

Sutil hefur verið hjá Force India um árabil og færði liðinu 42 stig í keppni í ár og sjötta sætið í keppninni um heimsmeistaratitil bílsmiða. Hann hafði litið vonaraugum til Renault en þar hefur verið skipað í bæði sæti með ráðningu Kimi Räikkönen og Romain Grosjean.

Eitt sæti er formlega laust hjá Williams sem aðeins hefur staðfest Pastor Maldonado sem keppnisþór á næsta ári. Óvíst þykir að Rubens Barrichello haldi sætinu en fari svo gæti Sutil verið ákjósanlegur eftirmaður hans vegna margra ára reynslu sinnar.

„Já, ég hef átt í viðræðum við nokkur lið en ekkert hefur verið undirritað enn,“ segir Sutil við tímaritið Speed-Magazin. „Williams er með laust sæti en ég get ekkert tjáð mig um viðræðurnar við það. Vonandi liggur niðurstaða þó fyrir ekki seinna en um miðjan desember,“ bætti hann við.



 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is