JJ Lehto í fangelsi fyrir sjóslys

Jyrki Järvilehto, öðru nafni JJ Lehto. stækka

Jyrki Järvilehto, öðru nafni JJ Lehto.

Finnski ökuþórinn JJ Lehto sem keppti í formúlu-1 á árunum 1988 til 1994 hefur verið dæmdur í tveggja ára og fjögurra mánaða fangelsi fyrir þátt sinn í sjóslysi sem leiddi til dauða vinar hans.

Sjálfur slasaðist Lehto er báturinn sigldi á brúarundirstöðu í þröngri á skammt frá bænum Rassepori í Finnlandi. Dómstóll komst að þeirri niðurstöðu að hann hafi verið ölvaður undir stýri og siglt vel yfir leyfilegum siglingahraða er slysið átti sér stað, í júní í fyrra.

Var báturinn talinn hafa verið á að minnsta kosti 80 km/klst hraða er hann rakst utan í brúna en þar er leyfilegur siglingahraði aðeins 5 km/klst.

Lehto neitaði ætíð sök og sagðist ekki hafa siglt bátnum. Ráðið var af áverkum hans að hann hafi setið undir stýri en ekki félagi hans. Ökuþórinn hefur ákveðið að áfrýja dómnum.

Besti árangur Lehto í keppni í formúlu-1 var þriðja sæti í kappakstrinum í San Marínó árið 1991. Var hann þó hring á eftir fyrsta bíl. Lehto keppti 62 sinnum og ók m.a. fyrir Sauber og  Benetton. Hann var liðsfélagi Michaels Schumacher hjá síðarnefnda liðinu 1994. Síðar sneri hann sér að sportbílakappakstri og varð m.a. sigurvegari í sólarhringskappakstrinum í Le Mans í Frakklandi með McLaren 1995 og Audi 2005. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is