Vergne til Toro Rosso
Það hefur aldeilis hlaupið á snærið fyrir Frakka í formúlu-1 því nú þegar er ljóst að þrír franskir ökumenn keppa í íþróttinni á næsta ári í stað einskis í ár og fyrra. Í dag réði Toro Rosso Jean-Eric Vergne til að keppa fyrir sig 2012.
Vergne er 21 árs og hefur keppt með góðum árangri í GP2-formúlunni og í ár varð hann annar í keppninni Renault heimsformúlunni svonefndu en bílar þar eru ámóta bílunum í GP2. Ásamt honum hafa landar hans Charles Pic verið ráðinn til Marussia sem hét Virgin í ár, og Romain Grosjean til Renault, sem heita mun Lotus á næsta ári.
Toro Rosso skiptir alveg um ökuþóra því ásamt Vergne hefur liðið ráðið Daniel Ricciardo til að keppa yfir sig en hann keppti fyrir Hispanialiðið í ár. Verða því Seastien Buemi og Jamie Alguersuari að leita sér fanga annars staðar.
Ricciardo hinn ástralski var þriðji ökumaður Toro Rosso í ár en keppti hins vegar rúmlega hálfa vertíðina með Hispania. Þeir Vergne hafa verið undir verndarvæng Red Bull fyrirtækisins á uppvaxtarárum sínum sem ökumenn og er þar að finna skýringuna á ráðningu þeirra.






