Ferrari með 2012 bíl til fyrstu æfingu

2012-bíll Ferrari verður klár á fyrsta degi bílprófana. stækka

2012-bíll Ferrari verður klár á fyrsta degi bílprófana. reuters

Ferrari mun frumsýna 2012-bíl sinn áður en bílprófanir hefjast í byrjun febrúar og hefja þegar í stað reynsluakstur á honum. Verður því ekki um að ræða einhvern millibilsbíl eins og algengt hefur verið undanfarin ár.

Ferrari hóf hönnun og þróun 2012-bílsins snemma á þessu ári og verður hann klár fyrr en margur forveri hans. Ekki hefur verið sagt hvenær frumsýningin á sér stað en fyrsta lota reynsluaksturs formúluliðanna á nýju ári verður í Jerez á Spáni 7.-9. febrúar.

Keppinautarnir hjá Mercedes munu ekki verða klárir með sinn bíl fyrr en í annarri reynsluaksturslotu í Barcelona 21. febrúar en liðið vill nota eins mikinn tíma og frekast er unnt til að hanna og þróa bíl sinn.

Samkvæmt nýjum reglum geta liðin ekki hafið reynsluakstur fyrr en bílar þeirra hafa staðist árekstrarpróf hjá Alþjóða akstursíþróttasambandinu. Eitt lið hefur þegar staðist öll höggpróf fyrir 2012-bíl sinn, en þar er um að ræða Caterhamliðið, sem hét Lotus á nýliðinni keppnistíð.

Sauber fyrst til að ákveða frumsýningu

Sauberliðið hefur orðið fyrst liða til að tilkynna um frumsýningardag 2012-bíls. Verður hann sviptur hulum í Jerez á Spáni daginn fyrir fyrstu bílprófin, eða 6. febrúar. Verður hann klár til reynsluaksturs á fyrsta degi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is