Hülkenberg í stað Sutils
Þá hefur það verið staðfest, sem þótt hefur í stefna; Nico Hülkenberg hefur verið ráðinn til að keppa fyrir Force India á næsta ári, en þar er Skotinn Paul di Resta fyrir. Kemur Hülkenberg því í stað landa síns Adrians Sutil.
Á nýliðinni keppnistíð gegndi Hülkenberg starfi varaökumanns hjá Force India og ók jafnan á annarri föstudagsæfingunni, til skiptis á bílum Sutils og di Resta. Hann keppti fyrir Williamsliðið í fyrra og var það jómfrúarár hans í formúlu-1, en árið áður, 2009, varð hann heimsmeistari í GP2-formúlunni.
„Vitaskuld er ég mjög ánægður með að vera áfram hjá Force India og fá tækifæri til að keppa fyrir liðið á næsta ári. Það var ekki létt verk að fylgjast með af hliðarlínu í ár en ég gerði mitt besta til að hjálpa liðinu og sýna því hvað í mér býr,“ sagði Hülkenberg í dag.






