Newey: Getum enn bætt okkur

Newey segir að Red Bull geti enn bætt sig. stækka

Newey segir að Red Bull geti enn bætt sig. reuters

Þótt lið hans hafi drottnað keppni í formúlunni undanfarin tvö ár segir Adrian Newey, tæknistjóri og aðalhönnuður Red Bull, að hægt sé að bæta keppnisbílana frá því sem verið hefur.

Newey segir reglurnar fela þetta í sér og við yfirlýsingu hans mætti ætla að kalt vatn rynni milli skinns og hörunds hjá tæknimönnum annarra liða. Lið hans vann báða titla formúlunnar bæði 2010 og 2011 en á nýliðnu ári sýndi heimsmeistarinn Sebastian Vettel þvílíka yfirburði, að hann vann 11 mót og 15 ráspóla. 

„Allt sem þarf er að kafa ofan í veikleika okkar árið 2011 og reyna að bæta úr þeim“ segir Newey við breska akstursíþróttaritið Autosport. „Það voru nokkur svið sem við gátum verið betri á og sem fyrr mun mun þróunarkapphlaup eiga sér stað í vetur.

Red Bull varr illviðráðanlegt bæði 2010 og 2011.

Red Bull varr illviðráðanlegt bæði 2010 og 2011. reuters

Nokkrar breytingar á reglum taka gildi, aðallega snúa þær að því að þrengja staðsetningu útblástursröra og takmarka möguleika til mótorstýringar. Fyrir vikið mun útblásturinn nær engin áhrif hafa á straumfræði bílanna og munu því allir freista þess að endurheimta þá vængpressu sem tapast vegna þess. Sá sem finnur bestu lausnina mun líklegast fagna sigri í formúlu-1 í ár,“ segir  Newey.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is