Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 5.1.2012
| 16:50
Buemi heim á fornar slóðir
Sebastien Buemi heldur velli í formúlu-1 þótt ekki keppi hann lengur fyrir Toro Rosso. Hefur hann verið ráðinn varamaður þeirra Sebastians Vettel og Marks Webber hjá Red Bull.
Buemi mun sinna reynsluakstri á bílprófanatímabilinu og jafnvel taka þátt í æfingum keppnishelga í ár.
Svissneski ökuþórinn, sem er 23 ára, keppti fyrir Toro Rosso í þrjú ár en liðið ákvað að skipta alveg um ökuþóra fyrir komandi vertíð. Áður en hann fór til Toro Rosso var hann reynsluökumaður hjá Red Bull og hefur verið undir verndarvæng fyrirtækisins frá árinu 2004 er hann keppti í lægri formúlum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






