Franski kappaksturinn snýr aftur í september 2013

Räikkönen í Paul Ricard við æfingar á Ferraribíl. stækka

Räikkönen í Paul Ricard við æfingar á Ferraribíl. ap

Yfirvofandi er að staðfest verði formlega, að franski kappaksturinn verði aftur á mótaskrá formúlu-1 árið 2013. Að sögn blaðsins Le Figaro er málið það langt komið að mótið hefur verið dagsett 1. september það ár.

Efnt hefur verið til samstarfs við belgíska kappaksturinn og stefnir allt í að til skiptis verði keppt í löndunum tveimur. Notast verður við Paul Ricard-brautina sem er skammt frá frönsku Miðjarðarhafsborgunum Marseille og Toulon.

Byggja verður nýjar áhorfendastúkur áður en að keppni kemur því lítið er af þeim sem stendur. Ætlunin er að reisa stúkur er taka 50.000 manns í sæti.

Í dag eru engin áform um að byggja keppnisbraut í grennd við París. Öll áform í þá veru síðustu ár hafa runnið út í sandinn. Og vegna samkeppni milli svæða verður tæpast hreyft við slíkum málum fyrr en eftir forsetakosningarnar í vor.

Afrennslissvæðin í Paul Ricard eru óneitanlega óvenjuleg.

Afrennslissvæðin í Paul Ricard eru óneitanlega óvenjuleg.

Franski kappaksturinn fór síðast fram árið 2008, í Magny Cours.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is