Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 9.1.2012
| 15:27
Senna sagður fara til Williams
Bruno Senna mun keppa fyrir Williamsliðið í ár, að sögn ríkasta manns Brasilíu. Olíufélag hans, OGX, mun kaupa undir hann sæti með vænum styrk til Williams.
„Það er einfalt - hann mun keppa fyrir Williams,“ hefur blaðið O Estado de S.Pauloeftir auðkýfingnum, Eike Batista. Fyrir helgi vildi Senna sjálfur sem minnst gera úr möguleikum sínum á að halda velli í formúlu-1; sagðist „heyja hörkukeppni um keppnissæti“ og hvergi „fengið staðfestingu á ráðningu“.
Batista tekur hins vegar af allan vafa um þetta efni og virðist því sem Rubens Barrichello sé á útleið eftir lengsta formúluferil sem nokkur ökumaður getur státað af.
Batista var maður á bak við það að Senna tók við af Nick Heidfeld hjá Renault á miðri síðustu vertíð.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







