Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 10.1.2012
| 9:32
| Uppfært
13.1.2012
21:02
Ferrari missir lykilmann til Mercedes
Mercedesliðið er sagt hafa nælt í lykilmann úr tæknisveit Ferrariliðsins og mun fyrrverandi yfirmönnum Ross Brawn, núverandi tæknistjóra Mercedes, ekki ýkja skemmt.
Fregnir herma að Mercedes hafi tekist að tæla yfirmann helstu tæknisveitar Ferrari, Marco Fainello, til sín.
Ótilgreind bið verður þó á því að hann mæti til starfa í bílsmiðju Mercedes þar sem gamlir samstarfsmenn frá Ferrariárunum eru fyrir hendi; Brawn og hönnuðurinn Aldo Costa. Fainello er lýst sem sérfræðingi í afköstum og nýtni dekkja.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






