Kostnaður við mótið í Valencia skelfir
Einn æðsti maður Valenciahéraðs, Jose Ciscar, segir ekki útilokað að samningi um Evrópukappaksturinn í samnefndri borg verði rift vegna kostnaðar og ástands efnahagsmála héraðsins og Spánar.
Vegna þessa þykja miklar efasemdir um að kappaksturinn í Valencia lifi öllu lengur en héraðsstjórnin liggur yfir því þessa dagana hvar beita skuli niðurskurðarhnífnum; hverjum mótum skuli hlíft og hverjum ekki.
„Við erum að endurskoða stóru mótin. Þau eru ekki eins lífvænleg og áður og aðstæður knýja okkur til að forgangsraða. Við getum þó ekki hagað okkur eins og okkur sýnist því það gæti kostað meira að rifta samningi en standa við hann. Því þurfum við að finna ásættanlega lausn,“ segir Ciscar.
Í orðum hans þykir liggja að leitað verði eftir því við Bernie Ecclestone, alráð formúlu-1, að hann lækki þóknun sína fyrir mótshaldið. Mun héraðsstjórnin í Valencia borga honum 25 milljónir dollara á ári fyrir að fá að halda kappaksturinn.
Það er víðar hart í ári en í Valencia og á Spáni því stjórnvöld í Suður-Kóreu hófu tilraunir sl.haust til að fá Ecclestone til að lækka einnig þóknun sína fyrir það mót.
Keppt hefur verið í Valencia frá árinu 2008 og gildir samningur um mótshald þar út næsta ár.






