Ferrari frumsýnir 3. febrúar
Massa á undan Fisichella í ísakstri á körtum í æfingabúðum Ferrari til fjalla á Ítalíu í dag. reuters
Ferrari mun frumsýna 2012-bíl sinn á einkabraut sinni í Maranello á Ítalíu 3. febrúar nk. Verður honum frumekið annað hvort þann dag eða þann næsta, að sögn liðsstjórans, Stefano Domenicali.
Ferrari átti verra gengi að fagna 2011 en væntingar höfðu staðið til og segir Domenicali enn miklar væntingar gerðar til komandi vertíðar. Hann segist þó muni ganga afslappaður til keppni, kvíði og stress væru til lítils annars en ama.
„Við megum ekki láta hugfallast ef á móti blæs í byrjun og heldur ekki fyllast ofurbjartsýni ef vel gengur í fyrstu mótum,“ segir Domenicali.
Allt stefnir í að það verði Felipe Massa sem frumekur Ferrarifáknum í ár.
Hann er á lokaári samnings og mæðir mikið á honum. Þarf hann að standa sig mun betur en í fyrra til að fá starfssamninginn framlengdan.






