Ferrari féll á prófinu

2012-bíll Ferrari féll á árekstursprófi. stækka

2012-bíll Ferrari féll á árekstursprófi. reuters

Ferrari hefur einsett sér að slá Red Bull við á árinu og hefur því hannað nýjan keppnisbíl af mikilli dirfsku. Hefur liðið fengið bakslag í seglin í þessum tilraunum sínum því smíðiseintak af bílnum féll á höggprófi.

Hermt er, að bíllinn hafi verið afhentur til prófana fyrir nokkrum vikum og vegna útkomunnar hafi Ferrari orðið að endurskoða hönnunarforsendur hans og styrkja grind hans áður en hann verður prófaður að nýju í næstu viku.

Samkvæmt hertum tæknireglum formúlu-1 verða keppnisbílar liðanna að hafa staðist áreksturs- og höggprófanir Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) áður en þeir fá að taka þátt í æfingum og þróunarakstri í aðdraganda keppnistíðarinnar.

Skýrt hefur verið frá því að 2012-bílar bæði Caterham (áður Lotus) og Force India hafi staðist prófanirnar í fyrstu tilraun.

Stefano Domenicali liðsstjóri Ferrari hefur varað aðdáendur liðsins við og sagat þeim að búast ekki við sérdeilis aðlaðandi bíl. Virðist Ferrari því hafa farið alveg nýjar leiðir í tilraunum sínum við smíði bíls sem ætlað er að skáka bæði Red Bull og McLaren.

„Hann er ólíkur því sem verið hefur og táknar algjöran aðskilnað frá fyrri tíð hvað hönnunarheimspeki varðar,“ segir Domenicali. „Hann er ekki svo fallegur því lögunin sem nýjar tæknireglur útheimta veita ekki mikið svigrúm. En við vonum alla vega að hann verði hraðskreiður, það er það sem gildir,“ bætir liðsstjórinn við.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is