Kreppan gæti bitnað á Katalóníuhringnum

Alonso á ferð á Renault í Katalóníuhringnum í Barcelona.

Alonso á ferð á Renault í Katalóníuhringnum í Barcelona. ap

Stjórn Katalóníuhéraðs á Spáni íhugar þessa dagana fýsileika þess að standa fyrir árlegu móti í formúlu-1 í Barcelona. Í ljósi mikils fjárhagsvanda héraðsins og krafna ríkisstjórnar um niðurskurð, aðhald og skuldalækkun vegna kreppu gæti kappaksturinn horfið af mótaskránni.

Spænska ríkið hækkaði skatta og lækkaði laun opinberra starfsmanna í glímunni við gríðarlega efnahagsörðugleika. Og nú er boðað að sjúklingar verði að taka meiri og stærri þátt í lyfja-og lækningakostnaði en fyrr. Í ljósi þess þykir mörgum óverjandi að verja tugum milljóna dollara í að halda keppni í formúlu-1 ár hvert.

Andreu Mas-Colell efnahagsráðherra Katalóníu segir að mótshald við núverandi efnahagsástand verði skoðað, réttlæta þyrfti nú orðið hverra einustu evru útgjalda héraðsins.

Katalóníubrautin er með samning um árlegt mót í bæði formúlu-1 og HM á mótorhjólum út árið 2016 en keppt hefur verið þar í þessum greinum frá 1991 og 1992. Mas-Colell segir að tryggja verði að það kosti ekki meira að rifta samningum en halda mótið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is