Sutil fyrir rétt

Adrian Sutil. stækka

Adrian Sutil. mbl.is/forceindiaf1

Þýski ökuþórinn Adrian Sutil þarf að mæta fyrir rétt og svara þar til saka en hann er ákærður fyrir líkamsárás. Þetta getur hugsanlega gert út um vonir hans um að halda velli sem ökumaður í formúlu-1.

Sutil er meðal ökumanna sem vomað hefur yfir lausu sæti hjá Williams. Hann réðst á einn helsta eiganda Renaultliðsins, Eric Lux, á næturklúbbi eftir kínverska kappaksturinn á nýliðnu ári. Rak hann bjórglas í höfuð hans en glasið brotnaði og þurfti 24 spor til að loka þeim skurðum sem hann hlaut. Mun hann naumlega hafa sloppið við alvarlegan skaða.

Lux mun hafa beðið Sutil að yfirgefa klúbbinn vegna atviks en þar var samkvæmi haldið fyrir gesti Renaultliðsins. Segir hann ökuþórinn hafa brugðist við því með því að slá þungu glasi í höfuð sér. Sutil kveðst hins vegar aldrei hafa ætlað að slá hann með glasinu heldur skvetta úr því á hann eftir að hafa sjálfur fengið yfir sig drykk frá einum gesti Lux.

Sigurvegari kínverska kappakstursins, Lewis Hamilton, var í klúbbnum þegar atvikið gerðist og er talið að hann þurfi að bera vitni fyrir rétti.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is