Alonso spáir viðburðaríkri vertíð

Alonso í ísakstri á körtu til fjalla á Ítalíu í gær. stækka

Alonso í ísakstri á körtu til fjalla á Ítalíu í gær. reuters

Fernando Alonso hjá Ferrari er á því að komandi formúluvertíð gæti orðið einstaklega skemmtileg í ljósi þess að hvorki fleiri né færri en sex heimsmeistarar verða í keppni. Svo margir hafa þeir aldrei verið áður.

Er hér um að ræða núverandi heimsmeistara, Sebastian Vettel, og þá Michael Schumacher,  Kimi Räikkönen, Lewis Hamilton og Jenson Button auk Alonso.

„Þetta er mikilsvert og frábærir tímar sem við eigum. Við verðum bara að njóta þeirra því við vitum ekki hversu miklu lengur við getum allir keppt og vitum heldur ekki hversu oft við fáum að sjá svo marga meistara samtímis í keppni,“ sagði Alonso við breska sjónvarpið, BBC.

„Þetta færir mótin og titilkeppnina á hærra plan en nokkru sinni áður. Við munum njóta hennar, áhorfendur munu njóta keppninnar. Mótin gætu orðið tvísýn og þrungin spennu,“ bætti Alonso við.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Mánudaginn 20. febrúar

Sunnudaginn 19. febrúar

Laugardaginn 18. febrúar

Miðvikudaginn 15. febrúar

Þriðjudaginn 14. febrúar

Mánudaginn 13. febrúar

Sunnudaginn 12. febrúar

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar


finnur.is